Samantekt um þingmál

Almannatryggingar

534. mál á 153. löggjafarþingi.
Félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Markmið

Að stuðla að því að einstaklingar sem metnir hafa verið til örorku og/eða misst hafa hluta starfsgetu sinnar geti aflað sér hærri tekna með atvinnu áður en tekjurnar komi til lækkunar á greiðslum til örorku- eða endurhæfingarlífeyrisþega.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að skerðingarhlutfall örorkulífeyris, endurhæfingarlífeyris og aldurstengdrar örorkuuppbótar lækki úr 11% í 9% og að sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna við útreikning tekjutryggingar og heimilisuppbótar hækki úr 1.315.200 kr. í 2.400.000 kr. á ári.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um almannatryggingar, nr. 100/2007.

Kostnaður og tekjur

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Afgreiðsla

Samþykkt með breytingu sem var tæknilegs eðlis.


Síðast breytt 22.08.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.